Nýr kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður með rafrænum hætti hjá embætti ríkissáttasemjara síðdegis í gær. Gildistími hins nýja kjarasamnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
Núgildandi kjarasamningur Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga rennur út í dag, gamlársdag, og tekur nýi samningurinn við á nýársdag, að því er fram kemur í tilkynningu.
Þetta er í fyrsta sinn sem Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrita nýjan kjarasamning áður en gildandi samningur rennur út.
Nýr kjarasamningur fer nú í kynningu meðal félagsmanna Félags grunnskólakennara og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 14. janúar 2022.