Einstaklega þurrt er nú á Suðurlandi og gróður mjög þurr. Lítið þarf því til að koma af stað gróðureldum sem geta valdið mikilli eyðileggingu á gróðri, dýralífi og jafnvel sett menn og mannvirki í hættu.
Brunavarnir Árnessýslu vilja því árétta að fólk sýni varkárni nú um áramótin við notkun á flugeldum og meðferð elds.
„Hafa þarf í huga að skjóta ekki upp flugeldum á stöðum þar sem hætta er á að glóð/eldur geti farið í gróður og kveikt gróðurelda. Nauðsynlegt er að hafa við hendina slökkvitæki, garðslöngu, eða vatnsfötur með vatni við notkun flugelda ef eldur fer í gróður. Ef upp kemur eldur, hringið strax í 112 og gerið öðrum á svæðinu viðvart um hættuna,“ segir í tilkynningu frá Brunavörnum Árnessýslu.
Í dagbók lögreglu í morgun kom fram að tilkynnt hafi verið um gróðurelda á höfuðborgarsvæðinu í nótt.