21 sjúklingur liggur á Landspítala með eða vegna Covid-19 og hefur þeim fjölgað um tvo frá því í gær. Sex eru á gjörgæslu, fimm þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur sjúklinganna er 62 ár.
7.416 sjúklingar eru með staðfest virkt smit og þar með á Covid-göngudeild spítalans, þar af 1.556 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hefur verið 261 innlögn vegna Covid-19 á Landspítala.