Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er manneskja ársins að mati hlustenda Rásar 2. Yfir 20 þúsund greiddu atkvæði í kjörinu.
Haraldur Þorleifsson, sem hefur vakið athygli fyrir átakið Römpum upp Reykjavík, varð í öðru sæti og Guðmundur Felix Grétarsson handhafi í því þriðja.
„Ég þakka fyrir þetta kærlega en vil kannski taka það fram að mér finnst ég vera að taka við þessu fyrir hönd alls þess frábæra fólks sem hefur unnið í þessu,“ sagði Þórólfur í viðtali á Rás 2.