Friðrik ráðinn framkvæmdastjóri Sviðslistamiðstöðvar Íslands

Friðrik Friðriksson.
Friðrik Friðriksson. Ljósmynd/Aðsend

Sviðslistamiðstöð Íslands hefur ráðið Friðrik Friðriksson í starf framkvæmdastjóra. Hann hefur störf 1. febrúar 2022.

Sviðslistamiðstöð Íslands, sem var formlega stofnuð um mitt ár 2021, gegnir því hlutverki að styðja íslenskar sviðslistir og auka sýnileika þeirra og hróður innan lands sem utan, að því er fram kemur í tilkynningu.

Tilgangi sínum hyggst miðstöðin ná með öflugu kynningarstarfi og sértækum átaksverkefnum sem hvetja til alþjóðlegra tengsla sviðslistafólks og sviðslistastofnana á Íslandi.

Friðrik Friðriksson brautskráðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1998. Hann var fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið um árabil og fékkst auk þess jöfnum höndum við leikstjórn og sjónvarpsleik. Árið 2014 söðlaði hann um, hóf nám við Háskólann í Reykjavík og lauk þaðan MBA-prófi árið 2016. Friðrik hefur síðastliðin ár verið framkvæmdastjóri Tjarnarbíós.

Friðrik gegnir hlutverki ritara í stjórn Evrópusamtaka sjálfstæðra sviðslista – European Association of Independent Performing Arts. Hann var meðstjórnandi í stjórn Ice Hot Nordic Dance á árunum 2017-2019. Í störfum sínum fyrir Tjarnarbíó hefur Friðrik komið sér upp víðtæku alþjóðlegu tengslaneti sem mun nýtast honum í hlutverki framkvæmdastjóra Sviðslistamiðstöðvar Íslands.

Friðrik mun ábyrgjast daglegan rekstur Sviðslistamiðstöðvar Íslands, leiða uppbyggingu hennar og móta framtíðarsýn miðstöðvarinnar í samráði við stjórn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert