548 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, að því er fram kemur í bráðabirgðatölum frá almannavörnum.
Alls greindust 586 með veiruna en þar af voru 38 landamærasmit.
Alls voru 229 í sóttkví. Í dag eru 7.604 í einangrun og 6.075 í sóttkví.
Fjöldi PCR-sýna sem tekin voru í gær kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð á morgun. Eins og áður þá teljast þessar tölur sem sendar eru út um helgar bráðabirgðatölur.