25 sjúklingar liggja á Landspítala með- eða vegna Covid-19. Fjölgar þeim þar með um þrjá frá því í gær. Meðalaldur þeirra er 54 ár. Sjö eru á gjörgæslu, þar af fimm í öndunarvél.
Sex af þeim sjö sem eru á gjörgæslu eru óbólusettir.
7.198 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 1.657 börn, að því er segir í tilkynningu. Þessir sjúklingar eru með staðfest virk smit utan spítalans.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa 273 verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala.