Lést af völdum Covid-19 í gær

Andlát af völdum Covid-19 á Landspítala í gær.
Andlát af völdum Covid-19 á Landspítala í gær. mbl.is/Jón Pétur

Karlmaður á sjötugsaldri lést af völdum Covid-19 á Landspítala í gær.

Þetta kemur fram á vef Landspítala. Maðurinn var óbólusettur.

30 sjúklingar liggja nú inni á spítalanum með eða vegna Covid-19-sjúkdómsins, þar af eru átta á gjörgæslu og fimm þeirra í öndunarvél. Meðalaldur sjúklinga er 56 ár.

8.511 sjúklingar eru í Covid-göngudeild, þar af er 1.961 barn.

285 hafa verið lagðir inn vegna Covid-19 á Landspítala frá upphafi fjórðu bylgju sem hófst 30. júní 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka