Rafmagn er aftur komið á í miðbænum, en rafmagnslaust var fyrr í kvöld vegna háspennubilunar við Mýrargötu, Geirsgötu, Tryggvagötu, Pósthússtræti, Hafnarstræti, Austurstræti og þar í kring.
Rafmagnið fór af um níuleytið, og sagði á vef Veitna kom fram að vonast væri til að rafmagn yrði komið aftur á innan stundar.
Þar var einnig bent á að fólk eigi að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem ekki slökkva á sér sjálf og geti valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju.
„Það á sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins ráðleggjum við þér að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp.“
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.
Fréttin hefur verið uppfærð.