Komugjöld í heilsugæslu haldast óbreytt

Ljósmynd/Colourbox

Engar hækkanir urðu á komugjöldum í heilsugæslu um áramótin. Almenn komugjöld lækkuðu 1. janúar 2021 úr 700 krónum í 500 krónur. Þessi gjöld eru óbreytt og sem fyrr greiða börn, öryrkjar og aldraðir ekkert komugjald. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu munu að öðru leyti hækka um 2,5% frá 1. janúar s.l. í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. 

Frá sama tíma hækka fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga og sjúkdradagpeningar um 4,6% og sömuleiðis viðmiðunarfjárhæðir vegna greiðsluþátttöku aldraðra fyrir stofnaþjónustu.

Greiðsluþátttaka lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu lækkar og sömuleiðis greiðsluþátttaka almennings vegna nauðsynlegra tannlækninga af völdum meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

Þá eru Sjúkratryggingum Íslands veittar auknar heimmildir til að greiða styrki til kaupa á hjálpartækjum fyrir fötluð börn sem eiga heimili á tveimur stöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert