Tannlæknakostnaður lækkar

Lækkanirnar eru hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi …
Lækkanirnar eru hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Greiðsluþátttaka lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu lækkaði 1. janúar síðastliðinn, að því er fram kemur í tilkynningu. Sömuleiðis lækkaði greiðsluþátttaka almennings vegna nauðsynlegra tannlækninga af völdum meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma.

„Frá og með 1. janúar sl. eykst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga í almennum tannlæknakostnaði öryrkja og aldraðra úr 57% í 63% og kostnaður þeirra lækkar að sama skapi. Áætlaður útgjaldaauki sjúkratrygginga vegna þessa nemur um 200 milljónum króna á ársgrundvelli,“ segir í tilkynningunni.

Tæplega 400 milljónum varið í lækkanirnar

Lækkanirnar eru hluti af gjaldskrárbreytingum vegna heilbrigðisþjónustu sem tóku gildi um áramótin en áætlað er að fjármunir sem varið verður til þessara lækkana á greiðsluþátttöku nemi um 380 milljónum króna á ársgrundvelli.

Þá segir í tilkynningunni að 15. júlí síðastliðinn hafi rammasamningur Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma tekið gildi samkvæmt reglugerð nr. 451/2013.

Fram að því höfðu endurgreiðslur þeirra sem áttu rétt á þeim miðast við gjaldskrá sem ekki hafði verið uppfærð til verðlags frá árinu 2014. Segir í tilkynningunni að með nýrri gjaldskrá samhliða rammasamningnum hafi greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hækkað í kostnaði allra sem áttu rétt á endurgreiðslu.

Kemur þá fram í tilkynningunni að greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna nauðsynlegra tannlækninga aldraðra og öryrkja hafi numið 80% en 50% hjá öðrum. Frá og með 1. janúar hækkaði hins vegar greiðsluþátttaka sjúkratrygginga hjá síðarnefnda hópnum í 80% til jafns við lífeyrisþega. Áætlaður útgjaldaauki sjúkratrygginga vegna þessa nemur 180 milljónum króna á ársgrundvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert