37 á Landspítala með Covid-19

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum.

37 sjúklingar liggja á Landspítala með- eða vegna Covid-19. Það er fjölgun um sjö frá því í gær. Átta eru á gjörgæslu, þar af sex í öndunarvél.

Sex þeirra sem eru á gjörgæslu eru óbólusettir.

9.494 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.280 börn, að því er segir í tilkynningu.

Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 292 innlagnir vegna Covid-19 á Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert