Kosningaþátttaka dróst saman í öllum aldurshópum nema þeim tveimur elstu í síðustu alþingiskosningum miðað við kosningarnar 2017. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar, þar sem rýnt er í kjörsókn. Var samdrátturinn mestur í yngsta aldurshópnum, 18-19 ára.
Ólafur Þ. Harðarson segir í samtali við Morgunblaðið að haldi þessi þróun áfram muni kosningaþátttaka líklega fara minnkandi, en hún hefur verið um 80% frá árinu 2013.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.