Kylfum og hníf beitt í líkamsárás

Tilkynnt var um líkamsárás í Kópavogi um klukkan 19:30 í gærkvöldi. Gerendurnir eru taldir hafa beitt kylfum og hníf. Fórnarlambið fór á slysadeild en málið er í rannsókn.

Um tvöleytið í nótt var tilkynnt um mann sem var að áreita fólk í verslun í Kópavogi. Þegar lögreglan kom á vettvang ók maðurinn á brott og neitaði að stöðva bifreiðina, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Honum var veitt eftirför um Kópavog og inn í Hafnafjörð og var naglamotta notuð til þess að stöðva för hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert