Metfjöldi kvartana til Umboðsmanns Alþingis

Skúli Magnússon er Umboðsmaður Alþingis.
Skúli Magnússon er Umboðsmaður Alþingis. mbl.is/Eggert

Í fyrra bárust umboðsmanni 570 kvartanir sem er metfjöldi og liðlega fimm prósent fjölgun frá metárinu 2020 þegar þær voru 540. Þá voru enn fleiri mál afgreidd á síðasta ári, eða 593 sem er rúmlega tíu prósent aukning milli ára. Þetta kemur fram á vef Umboðsmanns Alþingis.

Að meðaltali bárust umboðsmanni tæplega 50 kvartanir í mánuði, langflestar í maí þegar þær voru 84 en fæstar í júlí, eða 31. Flestar kvartanir bárust á öðrum ársfjórðungi eða 186 en hina fjórðungana voru tölurnar nokkuð áþekkar þeirra á milli eða 122-133.

Meira en 60 prósent kvartana var lokið innan mánaðar frá því að þær bárust, liðlega 80 prósent innan tveggja mánaða og hátt í 90 prósent á þremur mánuðum.

Um áramót voru 106 mál til meðferðar hjá umboðsmanni. Þriðjungur þeirra til umsagnar hjá þeim sem kvartaði eða beðið var svara frá stjórnvöldum og liðlega 70 til afgreiðslu hjá umboðsmanni.

Hlutfallsleg tvöföldun álita sem skilað var

Fram kemur einnig að umboðsmaður hafi skilað áliti í 59 málum árið 2021 sem er hlutfallslega um tvöföldun að ræða frá árinu áður. Mun það einkum helgast af því að frá 1. maí sl. eru álit ekki aðeins með tilmælum, þar sem talið er að stjórnvöld hafi brotið reglur og rétta beri hlut borgarans, heldur líka án tilmæla.

Álit með tilmælum voru 34 og án tilmæla 25. Líkt og álit með tilmælum fela hin einnig í sér niðurstöðu sem hefur almenna þýðingu og leiðbeiningargildi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert