Tíu milljóna vinningur gekk út

Fyrsti vinningur í Lottó gekk út í kvöld og kom í hlut áskrifanda, sem var einn um vinninginn. Hlýtur hann tæpar tíu milljónir króna fyrir vikið.

Annar áskrifandi nældi í bónusvinninginn og þar með 435 þúsund krónur. 

Tveir voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund, en annar miðinn var keyptur í Krambúðinni í Firði, Hafnarfirði en hinn á lotto.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert