Sigurbjörn ráðinn í Valhöll

Sigurbjörn Ingimundarson
Sigurbjörn Ingimundarson

Sigurbjörn Ingimundarson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur verið framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og hefur Tryggvi Másson verið ráðinn í hans stað. 

Aðstoðarframkvæmdastjóri mun meðal annars vinna að breytingum sem fyrirhugaðar eru á skipulagi Sjálfstæðisflokksins á næstunni, aukinni samhæfingu lykilstofnana flokksins, lögfræðitengdum málefnum og mun auk þess vera staðgengill framkvæmdastjóra.

Flokkurinn vel mannaður

„Ég er spenntur að takast á við nýtt hlutverk í sömu skipulagsheildinni. Breytingarnar eru liður í því að innleiða nýtt skipulag sem ég hef fengið tækifæri til að móta og þróa í samstarfi við aðra,“ segir Sigurbjörn í tilkynningu. 

„Ég er sannfærður um að þær breytingar munu efla flokkinn og styrkja. Flokkurinn er afar vel mannaður, það eru áhugaverðir tímar framundan og ég hlakka til að takast á við verkefnin sem bíða.“

Sigurbjörn lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og meistarapróf í lögfræði frá sama háskóla árið 2013. Þá lauk Sigurbjörn MBA-prófi frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands árið 2017. Undanfarin sjö ár hefur hann gegnt starfi framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins, en áður hafði hann m.a. tarfað hjá LOGOS lög­mannsþjón­ustu, Lands­virkj­un og Garðabæ. Þá hef­ur hann verið virk­ur í fé­lags­störf­um, m.a. verið formaður fé­lags ungra Sjálf­stæðismanna í Garðabæ og setið í stjórn full­trúaráðs Sjálf­stæðis­fé­lag­anna í Garðabæ.

Spennandi kjörtímabil

Tryggvi lauk BS-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og meistaraprófi í atferlishagfræði frá Erasmus University Rotterdam árið 2021. Á árunum 2015-2021 starfaði Tryggvi sem sérfræðingur og verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífins. Undanfarið hefur Tryggvi gegnt starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá íslensk-japanska félaginu Takanawa. Þá hefur Tryggvi sinnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir ýmis félagasamtök. 

„Fram undan er nýtt og spennandi kjörtímabil sem fylgja fjölda tækifæra. Ég hlakka til að takast á við þau ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og öflugu teymi starfsmanna þingflokksins,” er haft eftir Tryggva í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert