37 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 en þeir voru 36 í gær. Sjö eru á gjörgæslu og fjórir þeirra eru í öndunarvél. Fimm af sjö á gjörgæslu eru óbólusettir.
Þetta kemur fram á vef spítalans.
8.593 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.354 börn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa 303 lagst inn vegna Covid-19 á Landspítala.