Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fjarfund í dag kl. 13:30. Tilefnið eru áhrif sóttvarnaaðgerða á atvinnulífið og mótvægisaðgerðir.
Gestir fundarins verða:
Kl. 13:30 Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Kl. 13:50 Drífa Snædal forseti, Róbert Farestveit og Magnús Norðdahl frá Alþýðusambandi Íslands.
Kl. 14:10 Fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Kl. 14:30 Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frá BSRB.
Vegna takmarkana á fundahaldi fastanefnda er ekki unnt að hafa fundinn opinn með hefðbundnum hætti eða taka á móti fjölmiðlum á nefndasviði Alþingis.
Fylgst verður með fundinum í beinu streymi hér að neðan.