1.133 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru 49% í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 1.221 smit greinst í gær, þar af 88 á landamærunum.
Nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er 3.926.
Tekin voru 6.588 sýni, þar af 4.457 einkennasýni.
9.571 er nú í einangrun vegna Covid-19 og 11.061 í sóttkví.
43 eru á sjúkrahúsi, þar af átta á gjörgæslu.