Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir.
„Við þurfum að gera ráð fyrir að næstu vikur verði krefjandi og ástandið er mjög þungt á Landspítala. Stjórnvöld standa þétt að baki spítalanum og þessi ákvörðun er liður í því. Það er ótrúlegt hve miklu er hægt að áorka með góðri samstöðu, samvinnu og útsjónarsemi. Stjórnendur og starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar hefur sýnt það og sannað á afgerandi hátt síðustu misserin og ég met það mikils,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra í tilkynningu sem hefur verið send á fjölmiðla.
„Mönnun hefur lengi verið áskorun á Landspítala hvað varðar heilbrigðisstarfsfólk, eins og raunin er í okkar nágrannalöndum. Í faraldrinum hefur áskorunin verið sérstaklega krefjandi. Það er því mikilvægt að ríkisstjórn bregðist við með svo afgerandi hætti og ég veit að þessar ráðstafanir muni hjálpa til við þau erfiðu verkefni sem fram undan er,“ er svo haft eftir Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttur, sem er settur forstjóri Landspítala.
Með samstilltu átaki ráðuneytisins, stjórnenda, starfsfólks og stofnana heilbrigðiskerfisins hefur verið ráðist í fjölmargar aðgerðir til að styrkja stöðu Landspítala undanfarið. Hér eru taldar þær helstu: