Göngufélagarnir Þorlákur Morthens listmálari, betur þekktur sem Tollli, Arnar Hauksson og leiðsögumaður þeirra Sebastian Garcia náðu ekki á topp fjallsins Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameríku, í dag eins og áætlað var vegna slæms veðurs. Þetta staðfestir talsmaður leiðangursins í samtali við mbl.is.
Mennirnir voru komnir upp úr grunnbúðum og komnir í búðir þrjú þegar veður tók að versna. Ákváðu Arnar og Sebastian þó að sjá hvernig staðan væri og gengu upp í búðir tvö en Tolli hélt kyrru fyrir í búðum þrjú.
Þeir hafa nú allir þrír snúið við og eru á leið niður í grunnbúðir og því ólíklegt að þeir nái á toppinn á morgun. Þeir munu gera aðra tilraun til að komast á toppinn þegar veður skánar og næsti rammi opnast.
Leiðangurinn er farinn til að vekja athygli á starfsemi Batahúss sem tók til starfa á síðasta ári og um leið safna áheitum fyrir starfsemina en Tolli og Arnar eru báðir í stjórn Batahúss.
Batahús er einstaklingsmiðað bataúrræði við enda afplánunar þar sem einstaklingum er boðin heimilisaðstaða til allt að tveggja ára eða eftir atvikum til skemmri tíma.