Nemandi Kvennaskólans í Reykjavík komst upp með það athæfi að keppa fyrir hönd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ í Gettu betur.
RÚV greindi fyrst frá því að Dagur Steinn Arnarsson, nemandi á þriðja ári í Kvennaskólanum, hafi ákveðið að reyna að komast inn í lið Framhaldsskólans í Mosfellsbæ er hann sá auglýst eftir fólki í það.
Athæfið tókst og keppti Dagur fyrir hönd framhaldsskólans gegn Menntaskólanum á Egilsstöðum þar sem sá síðarnefnd hafði betur með 14 stigum gegn 2.
Í dag fórum við í sögubækurnar.@DagurStone hvenno maðurinn@kristjanaarnars meistari pic.twitter.com/wXk5YGsgUF
— Ingólfur Arnoddsson (@IngolfurArn) January 13, 2022