Trúnaðarráð Eflingar hefur samþykkt tillögu uppstillingarnefndar um skipun í þær trúnaðarstöður sem eru til kjörs í stjórnarkjöri félagsins sem fer fram 15. febrúar. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að Ólöf Helga Adolfsdóttir, núverandi varaformaður, verði formaður.
Listinn sem trúnaðarráðið leggur fram er eftirfarandi:
Skoðunarmenn reikninga:
Áður hafði komið fram að Agnieszka Ewa Ziółkowska, núverandi formaður Eflingar, ætlaði ekki að bjóða sig fram til formanns, að hún styddi Ólöfu, en að hún vildi áfram starfa sem varaformaður sem hún var upphaflega kjörin til.
Kosningakerfi Eflingar virkar þannig að annað hvert ár er kosið um formann og sjö aðra í stjórn og á oddaárum er varaformaður kosinn og sex aðrir í stjórn.
Þá hefur Guðmundur Jónatan Baldursson, stjórnarmaður í Eflingu, gefið upp að hann muni gefa kost á sér til formennsku í stéttarfélaginu, en til þess þarf hann að setja fram eigin lista. Í kjölfar fráhvarfs Sólveigar Önnu Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Eflingar, frá félaginu í vetur var Guðmundur fenginn í Kastljósið á Rúv. Greindi hann jafnframt frá deilum sem höfðu komið upp innan félagsins og höfðu átt sér nokkurn aðdraganda.
Í tilkynningu frá kjörstjórn kemur fram að ef einhver hyggist bjóða fram annan lista með tillögum um val í embætti hjá félaginu skuli skila honum eigi síðar en kl 8:59 þann 2. febrúar til fulltrúa kjörstjórnar á skrifstofu Eflingar. Þurfa ða fylgja listanum meðmæli a.m.k. 120 félagsmanna.