Jóni Má Ásbjörnssyni, söngvara hljómsveitarinnar Une misère, hefur verið vikið úr hljómsveitinni í kjölfar ásakana sem hafa komið fram. Hljómsveitin greinir frá þessu í færslu á facebook-síðu sinni.
Líkt og mbl.is greindi frá var Jóni Má sagt upp störfum fyrir helgi sem útvarpsmaður á X-inu 977 í kjölfar ásakana á hendur honum um mál tengd #metoo-byltingunni.
Síðan þá hefur mbl.is fengið staðfest að um kynferðisbrotamál sé að ræða.