Nikótínpúðar lúti sömu reglum og rafrettur

Nikótínpúðar gætu fallið í sama flokk og rafrettur.
Nikótínpúðar gætu fallið í sama flokk og rafrettur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Drög að frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum nr. 87/2018 um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, að því er kemur fram í tilkynningu.

Segir í tilkynningunni að með áformuðum lagabreytingum verði nikótínvörum bætt inn í lögin og hefur það í för með sér að þær muni að mestu leyti lúta sömu reglum og gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.

„Með því eru settar heildstæðar reglur um heimildir til innflutnings, sölu og markaðssetningar á nikótínvörum, auk reglna um eftirlit með slíkum vörum til að viðhlítandi öryggi verði tryggt,“ segir í tilkynningunni.

Með frumvarpinu er ætlunin að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum, þar á meðal nikótínpúðum.

Umsagnarfrestur er til 31. janúar 2022. Hér er hægt að senda inn umsögn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert