1.488 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru 50% í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 1.581 smit greinst í gær, þar af 93 á landamærunum.
Nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er 4.352.
Tekin voru 8.789 sýni, þar af 5.593 einkennasýni.
10.234 er nú í einangrun vegna Covid-19 og 12.817 í sóttkví.
33 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.