Björgunarsveit á Hofsósi í Skagafirði var kölluð út um áttaleytið í morgun þegar bátur losnaði frá bryggju. Verkefnið var fljótleyst og er því lokið núna. Var enginn leki sjáanlegur þegar báturinn var kominn aftur að bryggju.
Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.
Annars hafa engin útköll verið hjá björgunarsveitum í gær eða nótt. Davíð Már segir þó björgunarsveitarmenn á tánum og alla vel meðvitaða um fyrstu appelsínugulu veðurviðvörunina á þessu ári.