Stefán Hannesson, sem áður var í hljómsveitinni Gagnamagninu, hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann gengst við því að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi árið 2013.
Þá segist hann einnig hafa orðið uppvís að slíku ofbeldi í fyrra sambandi fyrir það. „Ég iðrast innilega fyrir það sem ég gerði á hverjum degi og mun alltaf gera,“ segir í yfirlýsingu Stefáns.
Hann hafi leitað sér hjálpar hjá sálfræðingi til þess að vinna úr sínum málum.
Þá segist hann hafa tilkynnt Gagnamagninu á síðasta ári að hann myndi ekki koma fram með þeim í framtíðinni. Hann sjái nú að hann hefði átt að tilkynna það opinberlega.
„Ábyrgðin er mín, skömmin er mín.“
Álfrún Auður Bjarnadóttir steig fram í fyrradag og sakaði ónefndan meðlim Gagnamagnsins um ofbeldi og hljómsveitarfélaga hans að sama skapi um þöggun. Umræddur meðlimur er Stefán. Eftir það bað Daði hana afsökunar og greindi hún frá því í dag.
Yfirlýsing Stefáns í heild sinni:
Árið 2013 beitti ég þáverandi kærustu mína ofbeldi og hefur hún nú stigið fram og sagt frá. Því miður var þetta ekki í fyrsta skipti sem ég varð uppvís að slíku ofbeldi en það átti sér einnig stað í mínu fyrsta sambandi. Ég iðrast innilega fyrir það sem ég gerði, 1/2
— Stefán Hannesson (@StefanHannesson) January 21, 2022