„Bæjarstjórn Fjarðabyggðar leggur á það þunga áherslu að unnið verði hratt að skilgreiningu og þróun nýrra kosti í raforkuframleiðslu,“ segir í ályktun bæjarstjórnarinnar sem samþykkt var á fundi í gær.
Jafnframt leggur bæjarstjórnin á það áherslu að ferli rammaáætlunar verði skýrt og hvaða orkukostir eru til nýtingar.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Orkustofnun sendu út neyðarkall til raforkuframleiðenda á Íslandi síðastliðinn þriðjudag. Laut það að mögulegri afhendingu raforku á tímabilinu 1. febrúar næstkomandi til 1. júní, umfram það sem framleiðendur hafa skuldbundið sig til að afhenda.
Segir í bréfi sem Orkustofnun sendi raforkuframleiðendum að um þessar mundir sé mikil eftirspurn eftir raforku, vatnsstaða í miðlunarlónum vatnsaflsvirkjana slæm og framleiðslugeta skert hjá einstökum framleiðendum.
„Mikilvægt er að hafa hraðar hendur til að tryggja nægja orkuöflun og tefja ekki þau orkuskipti sem völ er á. Þannig að hægt verði að mæta þörfum innlends iðnaðar, svo sem fiskimjölsverksmiðja, sem og íbúum landsins,“ segir í ályktuninni.
„Þá er það ekki síður mikilvægt gagnvart framleiðslu á rafeldsneyti sem er mikilvægur þáttur í orkuskiptum og liður í aukinni verðmæta- og atvinnusköpun um land allt. Mikilvægt er að slík framleiðsla verði hér á landi og henni skapaðar þær aðstæður að hún verði samkeppnislega hagkvæm á alþjóðavísu.“
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar að lokum á stjórnvöld og stofnanir ríkisins að leggjast á eitt til að skapa áðurnefndar aðstæður og gera Íslandi kleift ljúka orkuskiptum sem fyrst og um leið efla hag lands og þjóðar.