Upplýsingablað, sem dreift er í heimahús um þessar mundir, og vefsíða sem sett er fram í nafni „Bólusetningaráðs“, er hvorki á vegum embættis umboðsmanns barna né annarra opinberra aðila.
Þetta segir í tilkynningu frá embættinu.
„Þá skal tekið fram að þær upplýsingar sem þar eru settar fram eru villandi, enda verið að gefa í skyn að embætti umboðsmanns barna standi að baki, sem er alrangt. Ekki er vitað hverjir standa að baki vefsíðunni og hvergi er tilgreint hver er ábyrgðarmaður fyrir henni,“ segir í tilkynningunni.
„Að mati umboðsmanns barna er það grafalvarlegt að verið sé að dreifa villandi og röngum upplýsingum í skjóli nafnleyndar sem varða jafn mikilvæg og viðkvæm málefni og um ræðir.“