Nú þegar útlit er fyrir að aflétta eigi neyðarstigi á Landspítala eru komnar forsendur til þess að aflétta sóttvarnaaðgerðum innanlands. Þetta segir Halldóra Mogensen, þingflokksmaður Pírata, í samtali við mbl.is.
„Það er klárlega kominn tími til þess að stíga þessi skref.“
Hún segir það þó mikilvægt að heilbrigðisráðherra kynni skýra afléttingaráætlun og geri vel grein fyrir því hvenær og hvernig sóttvarnaaðgerðum verði aflétt.
„Við höfum alveg talað um það frá upphafi að það hefðu þurft að vera skýrari sviðsmyndir og áætlanir. Þannig við gætum öll áttað okkur á því hvernig ríkisstjórnin væri að hugsa þetta og að það væri meiri fyrirsjáanleiki í því hvenær aðgerðir yrðu hertar og hvenær þeim yrði aflétt aftur.“
Innt eftir því segist Halldóra alveg skilja ákvörðun heilbrigðisráðherra um að herða sóttvarnaaðgerðir síðast til þess að vernda spítalann en spyr um leið hvort það hefði verið hægt að fara aðrar leiðir til þess.
„Landspítalinn hefur verið á neyðarstigi og þegar spítalinn getur ekki tekið á móti sjúklingum eða tryggt að þjónustustigið sé gott þá er það að sjálfsögðu mikið áhyggjuefni sem þarf að bregðast við. Það er bara spurning hvort það hefði verið hægt að gera það einhvern veginn öðruvísi en með því að herða sóttvarnaraðgerðir.“
Það sé nefnilega ljóst að þau höft sem þjóðin hefur búið við vegna faraldursins síðastliðin tvö ár hafi kostað mikið og ekki bara í peningum talið.
„Við eigum algerlega eftir að skoða hvaða keðjuverkandi áhrif þessi höft hafa haft í gegnum samfélagið. Hvernig andleg líðan ungs fólks er sem hefur misst nánast tvö ár af félagslífi og eldra fólks sem hefur sömuleiðis þurft að vera í einangrun í langan tíma. Þetta er eitthvað sem við erum ekki einu sinni byrjuð að skoða.“
Því sé mögulega tilefni til þess að skoða aðrar leiðir til þess að styðja við heilbrigðiskerfið og þá sérstaklega Landspítalann, heldur en að herða sóttvarnaaðgerðir innanlands.
„Það sem vantað hefur er að skoða af einhverri alvöru hvort það hefði verið hægt að beita einhverri annarri taktík, td. tímabundinni eða varanlegri laukahækkun hjúkrunarfræðinga, til þess einmitt að laða fólk í þessi störf og til að sýna þakklæti fyrir þær fórnir sem fólk á þessum starfsvettvangi hefur fært á tímum faraldursins. Ég vil því meina að það hafi ekki verið sett nægilega mikið púður í að Landspítalinn gæti starfað eðlilega.“