1.558 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru 52% í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram á covid.is þar sem enn fremur kemur fram að alls hafi 1.610 smit greinst í gær, þar af 52 á landamærunum.
Er um metfjölda smita innanlands að ræða en áður var mesti fjöldinn 1.557 smit, sem greindust 30. desember.
Nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er 4.778.
Tekin voru 8.578 sýni, þar af 5.259 einkennasýni.
11.639 eru nú í einangrun vegna Covid-19 og 13.305 í sóttkví.
40 eru á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.