Karlmaður á áttræðisaldri lést á gjörgæslu á síðasta sólarhring með Covid-19.
Þetta kemur fram á vef Landspítala.
Þetta mun vera sjötta andlátið á árinu meðal einstaklinga á Landspítala með Covid-19.
Í morgun voru 37 á Landspítala með kórónuveirusmit. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél.
Samkvæmt upplýsingum á talnavef spítalans bættust fimm í hóp innlagðra með kórónuveirusmit í gær, þar af þrír bólusettir, einn örvunarbólusettur og einn vanbólusettur.
9.334 sjúklingar eru á Covid-göngudeild spítalans, þar af 3.366 börn.
Starfsmenn spítalans smitaðir af veirunni, og í einangrun eða innlögn, eru 213.