Icelandair mun funda með Flugfreyjufélagi Íslands á næstu dögum til að ræða nýlegan dóm Félagsdóms um uppsagnir og afturköllun þeirra í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Þá mun félagið breyta verklagi sínu í framtíðinni. Þetta kemur fram í svari félagsins við fyrirspurn mbl.is.
Um 900 flugfreyjum var sagt upp störfum í apríl 2020 í kjölfar faraldursins og endurskipulagningar hjá Icelandair. Sumarið sama ár, þegar línur tóku að skýrast í fluggeiranum var síðan 201 flugfreyja ráðin á nýjan leik og fór flugfélagið ekki eftir starfsaldri. Niðurstaða Félagsdóms, sem er endanleg, var að félaginu hafi verið skylt að afturkalla uppsagnirnar eftir starfsaldri. Félagsdómur féllst á kröfur FÍ og var Icelandair gert að greiða ASÍ 800 þúsund í málskostnað.
Í svari Icelandair við fyrirspurn mbl.is segir að mikilvægt hafi verið fá úrskurð félagsdóms um „þetta vafaatriði í kjarasamningi milli Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair,“ eins og það er orðað.
„Í þessu máli var um að ræða mismunandi túlkun á kjarasamningi milli aðila um það hvort um endurráðningar eða afturköllun uppsagna hafi verið að ræða eftir hópuppsögn flugfreyja og flugþjóna í apríl 2020. Aldrei hafði reynt á sambærilegt álitaefni enda var um að ræða aðgerðir sem áttu sér stað við fordæmalausar aðstæður í miðjum heimsfaraldri. Fram kemur í kjarasamningi að við hópuppsagnir skuli farið eftir starfsaldri og var það gert þegar uppsagnir voru framkvæmdar. Hins vegar kemur ekki fram í kjarasamningi að fara skuli að með sama hætti við ráðningar. Niðurstaða Félagsdóms var að ekki hafi verið um endurráðningar að ræða heldur afturköllun á uppsögnum þar sem uppsagnarfrestur var ekki liðinn og við afturköllun uppsagna við þessar aðstæður ætti starfsaldur að ráða för,“ segir í svarinu.
„Félagið mun að sjálfsögðu breyta verklagi komi aftur til hópuppsagna í framtíðinni í samræmi við þessa niðurstöðu. Þá mun félagið eiga fund með Flugfreyjufélagi Íslands á næstu dögum til að ræða dóminn og áhrif hans,“ segir þar ennfremur.