Kona á níræðisaldri lést á legudeild Landspítala í gær af völdum Covid-19. Þetta kemur fram á vefsíðu spítalans.
Alls hafa 46 einstaklingar sem smitaðir voru af kórónuveirunni látist hérlendis frá upphafi faraldursins.
33 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír þeirra eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.
Meðalaldur innlagðra er 61 ár.
9.206 sjúklingar eru í eftirliti Covid-göngudeildar spítalans, þar af 3.259 börn.
Covid sýktir starfsmenn Landspítala eru 219 talsins.
Í pistli farsóttanefndar á vef Landspítala sem birtist í gær kom fram að ljóst væri að nýtilkomnar breytingar á reglum um sóttkví verði mikil áskorun fyrir spítalann: „spítalanum er vandi á höndum að verja inniliggjandi sjúklinga fyrir smiti.“
Breyttar reglur um sóttkví tóku gildi í gær en nú þurfa þeir sem útsettir eru fyrir smitum utan heimilis eingöngu að fara í smitgát og börn og unglingar eru algjörlega undanþegin reglum um smitgát.
Fréttin hefur verið uppfærð