Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kveðst ekki vita hvort reglur hafi verið brotnar á þriðjudagskvöld, þegar Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent á Bessastöðum.
Fjöldi gesta í salnum var vel yfir því sem samkomutakmarkanir leyfa. Þá bar enginn þeirra grímu fyrir vitum sér, eins og lög kveða á um.
„Samkvæmt reglugerðinni hefðu menn kannski þurft að vera með grímur. En undanþágur frá reglugerðinni fást frá heilbrigðisráðuneytinu, þannig ég veit svo sem ekkert meira um þetta mál,“ segir Þórólfur í samtali við mbl.is.
Erfiðlega hefur gengið að fá svör við spurningum mbl.is og Morgunblaðsins um það sem virðast vera augljós brot á gildandi lögum í forsetabústaðnum að Bessastöðum.
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda kvaðst aðspurður hafa fengið þær upplýsingar frá Ríkisútvarpinu, að til staðar væri undanþága frá almennum sóttvarnareglum vegna útsendinga frá athöfnum á borð við þessa.
Sif Gunnarsdóttir forsetaritari ræddi við mbl.is strax að lokinni athöfninni á þriðjudagskvöld.
„Rúv, í svona upptöku, er með undanþágu þannig að við sátum þarna með öllum, öllu tæknifólki og starfsfólki, og það voru undir 40 manns,“ sagði hún þá.
Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, tjáði mbl.is sömuleiðis á miðvikudag að þau svör hefðu fengist frá Ríkisútvarpinu, að það hefði leyfi fyrir 40 manns við svona athafnir.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri sagði í Morgunblaðinu í gær að Ríkisútvarpið væri með sömu undanþágu og sviðslistir almennt. Um þær hafa gilt 50 manna samkomutakmarkanir þar sem grímuskylda er áskilin.
Grímuskylda sem virt var að vettugi í útsendingu sjónvarps á þriðjudag, eins og áður sagði.
Stefán sagði aðspurður að ekki hefði verið sótt um sérstaka undanþágu fyrir þennan eina viðburð. Áður hafi þó verið sótt um almenna undanþágu fyrir starfsemi stofnunarinnar, til þess að geta sent út viðburði.
Sóttvarnalæknir segir aftur á móti að almennar undanþágur frá reglugerð séu ekki gefnar.
Fyrirtæki, stofnanir eða annars konar starfsemi þurfi að sækja aftur um undanþágu þegar ný reglugerð komi fram.
„Undanþágurnar, eftir því sem ég veit best, falla út þegar ný reglugerð kemur,“ segir Þórólfur.
„Ég kannast ekki við það að það hafi verið gefið sérstakt álit frá okkur á þetta. En auðvitað eru margar undanþágubeiðnir sem berast og ekkert endilega víst að ég hafi séð það, en það er heilbrigðisráðuneytið sem þarf að svara því.“
Þetta sama ráðuneyti hefur enn ekki svarað fyrirspurn mbl.is frá því á miðvikudag. Í henni er krafist upplýsinga um það hvernig þeirri undanþágu ríkismiðilsins, sem hann ber fyrir sig, sé háttað.