Ríkisstjórnin fundar í dag og ætlar í kjölfarið að kynna afléttingaáætlun vegna samkomutakmarkana. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sagði á Alþingi í gær að áætlunin verði að öllum líkindum varfærin.
Blaðamannafundur vegna afléttinga verður haldinn í Safnahúsinu klukkan 11:30 í dag.
Metfjöldi kórónuveirusmita greindist innanlands í gær en þau voru 1.567 talsins.
Willum sagði ekki í hverju áætlunin fælist en sagði að stjórnvöld stæðu alltaf með heilbrigðiskerfinu og spítalanum og fara þyrfti með gát.
Ástæða ummælanna var sérstök umræða um sóttvarnir og takmarkanir á daglegt líf í bólusettu samfélagi en Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, var málshefjandi.
Sigmar sagði að þrátt fyrir mikinn fjölda smita væri staðan á spítalanum góð og fáir þyrftu að leggjast þar inn vegna veirunnar. Við slíkar aðstæður væri algjörlega óviðunandi að viðhafa jafn strangar samkomutakmarkanir og eru í gildi núna.
33 lágu á Landspítala í gær af ástæðum sem tengjast Covid-19. Þar af voru 23 í einangrun með virkt smit og 10 í bataferli. Í fyrradag lögðust þrír inn og sjö voru útskrifaðir. Allir hinna þriggja sem er á gjörgæslu eru lausir úr einangrun.
Nú þegar hefur verulega verið létt á sóttkví þeirra sem berskjaldaðir eru fyrir kórónuveirusmiti. Þeir sem berskjaldaðir eru fyrir smitum utan heimilis þurfa eingöngu að fara í smitgát og börn og unglingar eru algjörlega undanþegin reglum um smitgát. Landspítali hefur sagt að þetta verði honum mikil áskorun og að spítalanum sé „vandi á höndum að verja inniliggjandi sjúklinga fyrir smiti“.