Í gær, föstudaginn 28. janúar greindust 1203 með Covid-19 smit, þar af greindust 17 sem landamærasmit. Smitin innanlands voru því 1.186 og af þeim var 531 í sóttkví.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum.
Fjöldi þeirra sem eru í einangrun og hversu mörg PCR sýni voru tekin í gær, kemur fram á covid.is þegar heimasíðan verður uppfærð nk. mánudag.
Eins og áður þá teljast þessar tölur sem sendar eru út um helgar, sem bráðabirgðatölur.