35 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, tveir þeirra í öndunarvél.
34 lágu á spítala með Covid-19 í gær og hefur því fjölgað um einn á milli daga.
Þetta kemur fram á vef spítalans.
9.679 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 3.097 börn.