Alvarlegt slys við Framhaldsskólann á Laugum

Lögreglan vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti …
Lögreglan vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti en tilkynning verður send út síðar í dag vegna slyssins. mbl.is/Baldur Arnarson

Alvarlegt slys varð við Framhaldsskólann á Laugum fyrr í dag, þar sem maður varð fyrir bíl.

Lögregla mun senda út tilkynningu síðar í dag vegna slyssins. Fyrst var greint frá málinu á visir.is.

Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólameistari Framhaldsskólans á Laugum, kvaðst ekki tilbúinn að tjá sig um málið þegar leitað var eftir því, þar sem málið væri á viðkvæmu stigi.

Þrír úr viðbragðshópi Rauða krossins hafa verið sendir á vettvang til þess að veita vitnum að slysinu stuðning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert