20% sýkt í byrjun árs og stefnir í 80% í lok mars

Samkvæmt rannsókninni er áætlað að um síðustu áramót hafi um …
Samkvæmt rannsókninni er áætlað að um síðustu áramót hafi um 20% Íslendinga sýkst af COVID-19 frá upphafi faraldursins mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar á útbreiðslu Covid-19 hér á landi, sem ráðist var í byrjun árs, eru vísbendingar um að 20% Íslendinga hafi sýkst af sjúkdóminum frá upphafi faraldursins. Þetta kemur fram í pistil sóttvarnalæknis.

Segir þar að mótefni hafi verið mæld hjká 1.892 einstaklingum víðs vegar af landinu sem voru á aldrinum 20-90 ára.

„Helstu niðurstöður voru þær, að um 20% einstaklinga yngri en 50 ára mældust með mótefni gegn SARS-CoV-2 veirunni en voru heldur sjaldgæfari eldri einstaklingum. Vísbendingar eru því um að um síðustu áramót hafi um 20% Íslendinga sýkst af COVID-19 frá upphafi faraldursins.“

80% verði með ónæmi í síðari hluta mars

Miðað við þetta segir sóttvarnalæknir að ætla megi að rúmlega helmingi fleiri hafi raunverulega sýkst en hafi greinst með PCR-prófi. „Með sömu útreikningum og að því gefnu að um 1.500 manns smitist á hverjum degi þá má ætla að um 80% landsmanni hafi öðlast gott ónæmi gegn COVID-19 síðari hluta mars mánaðar,“ segir jafnframt í pistlinum.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Niðurstöður úr rannsókninni verða sendar í Heilsuveru á næstu dögum til þeirra sem tóku þátt í rannsókninni. Tekur sóttvarnalæknir fram að hafa þurfi í huga að mótefni í blóði segi ekki með óyggjandi hætti til um hversu vel varðir einstaklingar eru fyrir endursmiti. Þau séu hins vegar fátíð, en í dag hafi um 1.300 manns sýkst aftur af um 70.000 staðfestum smitum.

Fyrirhugað er einnig að mæla mótefni gegn S-próteini veirunnar og á þann hátt er hægt að greina þá sem myndað hafa mótefni eftir bólusetningu. Ekki er ljóst hvenær þessum mælingum mun ljúka en það verður auglýst betur þegar að því kemur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert