Um 40% grunnskólabarna í 8. til 10. bekk hafa fengið beiðni um að senda nektarmynd og rúmlega 50% ungmenna á framhaldsskólaaldri. Oftast er um að ræða beiðni frá ókunnugum einstaklingi á netinu. Þá er líklegra að stelpur séu beðnar um að senda eða deila af sér nektarmyndum samanborið við drengi.
Þetta kemur fram í niðurstöðum skýrslu Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar um kynferðislegar athugasemdir og nektarmyndir meðal nemenda í elstu bekkjum grunn- og framhaldsskóla.
Meðal nemenda í 8. og 10. bekk hafa um 20% fengið kynferðislegt komment á netinu síðastliðið ár en um 29% meðal framhaldsskólanema. Þá voru stelpur á framhaldsskóla aldri um tvöfalt líklegri til að fá slíkt komment.
Af þeim nemendum sem fengu kynferðislegar athugasemdir hakaði um helmingur í valmöguleikann „mér var sama“ þegar þau voru spurð út í upplifun sína vegna þess.
Þriðjungur grunnskólanemenda fannst það viðbjóðslegt og 11% upplifðu hræðslutilfinningu. Svipað hlutfall var að finna í eldri aldurshópnum en um 27% þátttakenda á framhaldsskólaaldri þótti viðbjóðslegt að fá slík komment og um 9% fundu fyrir hræðslu. Þá voru stelpur líklegri til að finna fyrir hræðslu en strákar, þeir voru líklegri til að þykja kommentin spennandi eða líka við þau.
Þegar kemur að því að fá nektarmyndir sendar eru stelpur mun líklegri en strákar til að hafa fengið slíkar myndir. Þriðjungur nemenda í 8. til 10. bekk hafa fengið sendar nektarmyndir en rúmur helmingur ungmenna á framhaldsskólaaldri.
Í hópi grunnskólabarna í efstu bekkjunum hafa um 42% stelpna fengið sendar nektarmyndir og 25% stráka. Í framhaldsskóla er hlutfallið mun hærra eða um 70% stelpna og 40% stráka.
Voru strákarnir mun líklegri til að þekkja þann sem sendi myndina en alls fengu 70% stelpna mynd senda frá ókunnugum á netinu, samanborið við 30% stráka. Tæpur helmingur stráka fékk myndina senda frá maka. Hlutfall stelpna sem höfðu fengið mynd frá maka var lægra, eða um 37%.