Hættir í kjölfar ásakana

Árni Pétur Jónsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs.
Árni Pétur Jónsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs. Ljósmynd/Aðsend

Árni Pétur Jónsson hefur látið af störfum sem forstjóri Skeljungs í kjölfar þess að kona sem hann vann með fyrir u.þ.b. 17 árum sendi honum bréf þar sem hún tjáði honum að hann hefði gengið yfir mörk hennar. Árni var yfirmaður hennar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Árna.

Ekki brotlegur við lög

„Nýverið barst mér tölvupóstur frá fyrrverandi samstarfsmanni mínum en við unnum saman fyrir u.þ.b. 17 árum og ég var þá yfirmaður hennar í öðru fyrirtæki. Þar greinir hún frá því að í dag upplifi hún samskipti okkar á þessum tíma með þeim hætti að ég hafi gengið yfir ákveðin mörk. Hún hefur tjáð mér að ekki sé verið að saka mig um ofbeldi, áreiti, brot gegn lögum eða neitt þess háttar heldur hafi verið um að ræða valdaójafnvægi og aldursmun,“ segir í tilkynningunni.

Árni segist hafa beðið hana afsökunar og sagt að henni að hann harmi mjög að heyra um hennar vanlíðan.

„Þrátt fyrir að ég hafi á engan hátt gerst brotlegur við lög þá átta ég mig á því að viðmið og viðhorf hafi breyst í samfélaginu og er það vel. Met ég stöðuna þannig að mál þetta kunni að valda fyrirtækinu og samstarfsfólki óþægindum. Ég hef því óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri hjá Skeljungi hf,“ segir Árni enn fremur

Í tilkynningu frá Skeljungi segir að Ólafur Þór Jóhannesson aðstoðarforstjóri hafi verið ráðinn forstjóri Skeljungs hf. í stað Árna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert