Valdís gefst ekki upp

Valdís Valbjörnsdóttir lætur veiruna ekki stoppa sig.
Valdís Valbjörnsdóttir lætur veiruna ekki stoppa sig.

Skagfirska söngkonan Valdís Valbjörnsdóttir sendir frá sér nýtt lag í dag til að lífga upp á tilveruna og sýna og sanna að hún gefst ekki upp þótt á móti blási. Hún greindist með kórónuveiruna í byrjun maí í fyrra, var mjög veik og hefur glímt við mikil eftirköst síðan, meðal annars verið í endurhæfingu og rannsóknum á Reykjalundi alla virka daga síðan 4. október.

Viðtal við Valdísi er á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

Nýja lagið, „Onto You“, samdi Valdís með söngkonunni Söru Pétursdóttur, eða Glowie, og Anton Ísak Óskarsson útsetti lagið. Magnús Jóhann Ragnarsson leikur á píanó og Reynir Snær Magnússon á gítar. „Textinn fjallar um spennuna sem fylgir því að byrja í nýju sambandi,“ segir Valdís.

Tónlist hefur fylgt Valdísi, sem er 22 ára, frá blautu barnsbeini og hún hefur lagt mikið á sig til þess að ná árangri. „Ég hef glímt við kvíða frá unga aldri og tónlistin hefur hjálpað mér mikið, ég hef alltaf haft áhuga á tónlist og sungið frá því ég man eftir mér,“ segir hún. Þegar hún var níu ára byrjaði hún að æfa söng og var í kórnum Draumaröddum norðursins undir stjórn Alexöndru Chernyshovu. Hún var líka í einkatímum hjá henni til 2012 en síðan í söngnámi hjá Regínu Ósk í Söngskóla Maríu Bjarkar 2012 til 2016.

Óku suður í söngtíma

„Mamma og pabbi keyrðu mig frá Sauðárkróki í söngtíma í Reykjavík aðra hverja viku. Þegar ég byrjaði í framhaldsskólanum hóf ég söngnám hjá Þórhildi Örvars og keyrði til hennar á Akureyri vikulega. Eftir framhaldsskóla fór ég í söngnám í Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan með diplómu í söng.“ Hún flutti svo suður haustið 2020 og byrjaði að kenna í Söngskóla Maríu Bjarkar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert