Björgunarsveitir aðstoða ökumenn

Björgunarsveitir aðstoða ökumennina.
Björgunarsveitir aðstoða ökumennina. Landsbjörg/Óðinn Sigurðsson

Vegna veðurs og ófærðar er búið að loka vegum í nágrenni við Selfoss. Búið er að kalla út björgunarsveitir til að aðstoða ökumenn sem eru fastir í snjó.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Veg­in­um um Hell­is­heiði hef­ur verið lokað vegna veðurs en vetr­ar­færð er um allt land. Suður­stranda­vegi hef­ur einnig verið lokað, ásamt Þrengsl­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert