Landhelgisgæslan og sérsvetin ríkislögreglustjóra kafa nú eftir mannslíkama eins farþega úr flugvélinni sem fannst í Þingvallavatni í fyrradag.
„Á sónarmynd úr kafbáti sést eitthvað sem gæti verið útlínur á mannslíkama. Landhelgisgæslan og sérsveitin eru að fara kafa eftir því,“ segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Kafbátur á vegum fyrirtækisins Teledyne Gavia hefur kafað á svæðinu í dag. Leitarhundar, bátar og drónar hafa aðstoðað við leit meðfram bökkum Þingvallavatns.
Í tilkynnngu á vef lögreglunnar segir að aðstandendur hafa verið upplýstir um stöðu mála og að atvik sem þessi muni koma upp á næstu dögum ef sónarmyndir gefa tilefni til þess að eitthvað sé skoðað nánar.