Líkin fjögur fundin

Aðgerðum hefur verið hætt í dag.
Aðgerðum hefur verið hætt í dag. mbl.is/Óttar

Lík þeirra fjögurra sem voru um borð vélarinnar sem fannst í sunnanverðu Þingvallavatni á laugardaginn eru öll fundin. 

Frá þessu greinir lögreglan í tilkynningu.

„Búið er að finna og staðsetja líkamsleifar 4 einstaklinga á botni vatnsins á 37 metra dýpi eða neðar. Undirbúið var að kafa eftir þeim en þar sem veður er að versna hratt var ákveðið að hætta aðgerðum enda ekki hægt að tryggja öryggi kafaranna við þær aðstæður sem eru núna,“ segir í tilkynningunni.

Þakka björgunaraðilum

Öllum aðgerðum á Þingvallavatni í dag hefur verið hætt. Þegar er hafin skipulagning á björgunaraðgerðum og verður gengið í þær strax og veður leyfir.

„Aðstandendur hafa verið upplýstir um þessa stöðu mála. Þeir hafa beðið fyrir kærar kveðjur til björgunaraðila allra fyrir þeirra störf undanfarna daga og er þeim hér með komið til skila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert