Borgfirðingurinn Einar Þ. Eyjólfsson hefur verið ráðinn fjármála- og rekstrarstjóri Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og er kominn til starfa, að því er segir í tilkynningu.
Kemur fram að Einar þekki afar vel til ungmennafélagshreyfingarinnar en hann æfði knattspyrnu og hefur samhliða öðrum störfum starfað sem knattspyrnuþjálfari hjá hinum ýmsu félögum. Meðal annars hjá Skallagrími, sem er aðildarfélag Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB), sem er einn sambandsaðila UMFÍ. En UMFÍ er landssamband allra ungmenna- og íþróttafélaga á Íslandi.
Einar er íþróttakennari og viðskiptafræðingur að mennt en undanfarin ár hefur hann starfað sem sérfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hann er giftur Maj-Britt Briem lögmanni. Þau eiga þrjár dætur Herdísi Maríu, Þóru Guðrúnu og Valý Karen sem allar stunda knattspyrnu hjá Þrótti R.
Starf Einars mun fela í sér umsjón með fjármálum og almennum rekstri UMFÍ. Hann mun einnig koma að ýmsum öðrum verkefnum eins og stefnumörkun, skýrslugerð og úrvinnslu gagna, upplýsingagjöf til stjórnenda auk þess að sinna ýmsum tilfallandi verkefnum.
„Söfnun gagna og úrvinnsla þeirra er mikilvægur liður í skilvirku starfi UMFÍ og þjónustu við sambandsaðilana og íþróttafélögin. Slík vinna mun hjálpa UMFÍ til þess að vera betur í stakk búið til þess að takast á við ný verkefni og nýjar áskoranir í framtíðinni og stuðla að því að félagið geti verið leiðandi afl á sínu sviði í samfélaginu. Annars sé ég fyrir mér og bind vonir að framundan verði skemmtilegt og líflegt íþróttasumar þar sem hægt verði að skipuleggja og halda íþróttamót án nokkurra COVID-áhrifa,‟ er haft eftir Einar í tilkynningunni.
Þá segir Einar að staða landssambandsins sé afar sterk enda sinni það góðum stuðningi við ungmenna- og íþróttafélög um allt land.
„Ég sé fyrir mér að félagið haldi áfram að vaxa og dafna, rétt eins og félagið hefur gert síðan það var stofnað fyrir meira en 110 árum. Einn af styrkleikum Ungmennafélags Íslands og ungmennafélagshreyfingarinnar allrar liggur í öflugu grasrótarstarfi sem hefur gert það verkum að félagið hefur ávallt náð að aðlaga sig að þeim breytingum sem hafa orðið í samfélaginu hverju sinni. En UMFÍ líkt og önnur félagasamtök, þarf stöðugt að minna á samfélagslegt hlutverk sitt og sýna þau víðtæku og jákvæðu áhrif sem starfsemi félaga eins og Ungmennafélags Íslands hefur á samfélagið,“ segir Einar að lokum.