Allar fjórar aflvélar Nesjavallavirkjunar eru nú komnar í gang og farnar að framleiða rafmagn eftir að sprenging varð í íhlutum í tengivirki Landsnets á Nesjavöllum á föstudaginn fyrir rúmri viku.
Líkt og greint var frá varð sprenging í strengmúffu í einni vélanna og duttu þær allar út á tímabili.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ON.
Þar segir enn fremur að vinna við viðgerð hafi gengið vonum framar og fóru síðustu vélar af stað nú á laugardag, rúmum sólarhring á undan áætlun.
Vinna við viðgerð hefur gengið framar vonum og fóru síðustu vélarnar af stað nú á laugardag, rúmum sólarhring á undan áætlun. Virkjun Orku náttúrunnar á Nesjavöllum er því komin með fulla framleiðslugetu á ný.